03júlí

Hverjum langar til Íslands og eiga á hættu að hitta ísbjörn???

Mig langar svo rooooosalega til Íslands. Það eru allir að fara frá mér. Hófí og Fúsi eru á Íslandi....en koma sem betur fer á morgun. Tinna fór á mánudaginn, Sylvía fór á miðvikudaginn og Elísabet fer í næstu viku...... mér líður eins og palla einum í heiminum. Ég hef þó Línu, Kristínu og Fúsa....þar til Kristín fer til Íslands og svo er Hófí að koma.

Það var ágætis ævintýri að koma henni Tinnu í þetta blessaða flug. Þar sem Sylvía er ekki búin að blogga um það þá gef ég mér það bessaleyfi að segja söguna. Ennnnn...... hún Tinna er langt frá því að teljast heppin stúlka.......hún er týpan sem stendur í báða fætur kjurr..... en tekst samt að detta!!

Hún ætlaði að taka lest kl 2 aðfaranótt mánudags til að ná í flugið á mánudags morguninn. Það gekk bara ekki fyrir sig eins og hjá flestum. Hún og Sylvía mæta niður á lestarstöð til að kaupa miða í lestina en þá var búið að loka afgreiðslunni svo þær gátu ekki keypt miðann..... þær systur deyja ekki ráðalausar svo þær bruna heim til að ná í bókunarnúmerið til að geta keypt miða í sjálfsalanum......þegar þær koma til baka á lestarstöðina er búið að loka og læsa húsinu svo að þær komust ekki í sjálfsalann.....þá er farið heim aftur og ætlað að panta miðann á netinu .........ennnn heimasíðan var biluð........Ég fékk því símtal á aðfaranótt mánudags um það hvort ég vildi ekki koma með að skutla Tinnu upp á flugvöll. Svo við skelltum okkur til Köben. Við lögðum af stað rétt rúmlega 2 og vorum því mættar allt of snemma til köben......mig langaði í dominos svo það var keyrt beint upp á Amager til að athuga hvort dominos væri opið......þrátt fyrir að ég hefði næstum stútað bílnum hennar Tinnu með því að keyra inn í hliðina á bíl (munaði 5 mm) þá náðum við á leiðarenda.......en nei!.... þeir opna fyrst kl 11..... fýluferð það..........þá fórum við rúnt um köben áður en við hentum Tinnu upp á flugvöll. Tinna vinkaði svo bless í rúllustiganum með tárin í augunum en við Sylvía héldum í okkur þar til hún var farin í gegnum öryggishliðið. Þá brutust tárin fram og við Sylvía grétum alla leiðina að seven eleven. En þar fundum við einhverja fína kjúklingasamloku til að drekkja sorgum okkar í...... þessi samloka var ekkert rosa sniðug því við Sylvía fengum báðar illt í mallakút af henni......ekkert stórvægilegt samt......bara svona loft með vondri lykt........Sylvía vill ábyggilega meina að mín lykt sé verri en hennar því ég borði lauk.....en það er LYGI....... Við keyrðum svo beinustu leið aftur heim til Horsens með þokkalega tannstöngla í augunum......hefðum skroppið í Fields ef að kl hefði ekki bara verið 6 eða guð má vita hvað......og við nenntum ekki að bíða þar til opnaði. 

Þegar heim var komið lögðum við okkur í einn og hálfan áður en við fórum að gera það sem við höfðum planað deginum áður.....en það var að skreppa í bankann........auðvitað var biðröð dauðans í bankanum.....eitthvað sem ég nenni ekki......hvað þá ósofin......en það hafðist.....ég hélt mér svo vakandi til kl 6 um kvöldið en ætlaði þá heldur betur snemma í rúmið því ég þurfti að vakna í vinnu hálf 5 á þriðjudeginum........en nei.......það gekk ekkert fyrir mig að sofna og eftir að hafa legið og bylt mér í 2 tíma dröslaðist ég frammúr og ætlaði heldur betur að hlamma mér í sófann og sofna yfir sjónvarpinu......svo ég valdi mér mynd sem heitir World trade center.......án þess að kynna mér nánar myndina kveiki ég á henni og byrja að horfa.......en nei....þá var þetta auðvitað svo rosalega sorglegt að ég gat ekkert sofnað ......lá bara grenjandi yfir væmu atriðunum......ég var alveg eins og þegar ég horfi á Oprah.......ég grenja yfir næstum öllum þáttum af Oprah......svo ég kláraði að horfa á myndina og dröslaðist svo aftur inn í rúm.......og sofnaði eins og þyrnirós.

Á miðvikudaginn kvaddi ég svo Sylvíu og keyrði henni á lestarstöðina......hún verður allt of lengi á Íslandi og ég sakna hennar nú þegar...

Í dag fór ég svo að vinna.......leiðilegt job sem ég fékk en ég fæ laun fyrir það svo það skánar aðeins við það......

Til ykkar sem eruð á Íslandi langar mig bara að segja að hérna er 30°c hiti og ég er sólbrennd.......Megi sú bölvun hvíla á ykkur að það rigni allann tímann sem þið eruð á Íslandi!! 

Harpa kemur með Elísabet og Kristínu tilbaka til Dk núna 20. júlí....hún er búin að vera allt of lengi í burtu og ég sakna hennar rosalega..... hún labbaði út frá pabba sínum um daginn og ætlaði að labba til Danmerkur til mömmu sinnar........hún var í einhverri fýlu og að reyna að stjórna fólkinu í eyjum og það var ekki alveg að gera sig......þá ákvað hún þetta.

Hólmfríður, hvað segiru um að taka mega djamm á þetta meðan hinar kellurnar eru á Íslandi? Hlæjandi You and me babe Glottandi


 

03. júlí 2008 klukkan 16:59
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
8 athugasemdir
26júní

2. önn yfistaðin...

Ég vildi óska að ég gæti sagt eins og Elísabet að nú væri ég búin og orðin hjúkka.........ennnnnn.... ég er víst bara búin með 2. önn.... ég s.s. náði prófunum!!! .........þvílíkur léttir... nú er ég í skýjunum yfir því að vera komin í sumarfrí sem verður þó ekki mikið frí því ég þarf að finna mér vinnu..... en ég er þó allavega ekki í skóla á meðan!
26. júní 2008 klukkan 15:24
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
4 athugasemdir
08júní

Ný færsla....

Þetta blogg er ekki alveg að gera sig yfir próftímabilið en ég ákvað að gera eina færslu áður en ég færi í prófin en þau eru 13. júní og 26. júní.

Það er aldeilis mikið búið að drífa á daga mína síðan síðast.´

Ég byrja á Íslandsferðinni, en ég fór til Íslands á fimmtudaginn í síðustu viku til að vera viðstödd sextugs afmælið hjá pabba. Ég vaknaði um 8 leitið á fimmtudagsmorguninn og kláraði að pakka, svo var löööng lestarferð því hún tók 4 tíma þar sem það er verið að gera við teinana. Ég flaug um kvöldið og lenti á Íslandi um hálf 11. Okkur Hörpu tókst svo á met tíma að fara í gegnum fríhöfnina og versla svo fórum við út um tollinn og þetta var sem betur fer eitt af fáum skiptum sem ég var ekki stoppuð. Ennnn.........þegar út var komið fór ég að leita að kunnulegu andliti.........Þórunn systir ætlaði að sækja mig.....en nei.......þarna var engin Þórunn.........svo ég hringi í hana......og fæ viðbrögðin haaaa......ertu komin??? ég er að leggja af stað og sækja þig...... hún hafði eitthvað misskilið mig og hélt að ég kæmi klukkutíma síðar en ég gerði....
En Þórunn braut eflaust allar umferðarreglur á millli Hafnarfjarðar og Keflavíkur því hún var komin fljótlega að sækja okkur og brunaði með mig upp í breiðholt og skutlaði Hörpu til ömmu sinnar.

Ég fór með tollinn heim til Söndru að hitta hana og Söru og þar var aðeins djúsað......mér finnst svo gaman að hitta tvíburana.......ég er ekki alveg að gúddera það að þær séu að flytja til Hveragerðis........en það verður bara að venjast.  Ég var þar til um klukkan..........guð má vita hvað...... eitthvað seint um nóttina....

Eftir lítinn svefn vaknaði ég og fór og sótti Hörpu og við brunuðum heim í Hafnarfjörð að sækja Írisi sætu.... þann daginn fórum við mæðgurnar í heimsókn til Báru vinkonu og hittum alla þar......ég fór svo drekkhlaðin þaðan af harðfisk frá Brynjari og fær hann Brynjar besti þúsund þakkir fyrir

....þaðan fórum við og borðuðum svo með familíunni. Við systkinin hittumst öll hjá pabba ásamt Áslaugu konunni hans Ægis og öllum barnabörnunum hans pabba og borðuðum saman. Við fórum svo heim um 11 leitið og Ég og Íris horfðum saman á pretty woman....það var uppáhalds myndin mín þegar ég var 13 ára......en við Íris fórum því fyrst að sofa um 3 leitið. Það var vaknað snemma næsta dag eða um hálf 7 því Harpa og Íris áttu flug til Eyja kl hálf 9. Ég keyrði prinsessunum út á flugvöll en Íris ætlar að passa Hörpu á daginn á meðan Elona er í vinnu. Pabbi hennar kemur svo frá Tokyo á mánudaginn til að vera með þeim í eyjum.

Þaðan fór ég til pabba og hjálpaði honum með afmælisundirbúininginn .....það var allt rosalega flott hjá kallinum og heppnaðis mjög vel. Ég hafði verið búin að plana slideshow fyrir pabba í afmælinu og hafði beðið Fúsa litla um að hjálpa mér við það. Hann er snillingur í öllu sem viðkemur tölvum og fékk hann til að sjá um þetta fyrir mig, en hann hafði einmitt gert svona svipað í afmælinu hjá pabba sínum og þaðan fékk ég hugmyndina. Svo fyrir afmælið hafði ég fengið Ægir bróðir til að scanna inn myndir sem voru til af pabba og senda mér. Fúsi litli setti þetta saman og þetta var snilld, það sem krakkinn getur gert er ótrúlegt. Þúsund þakkir elsku besti Fúsi minn Hlæjandi Myndbandið var sýnt í afmælinu og fólk felldi tár því þetta var svo fyndið. Það er í vinnslu að setja myndbandið inn á youtube.
 
Það var boðið upp á hellings hellings áfengi í afmælinu svo að það var djammað fram á rauða nótt. Ég hef ekki hitt mikið af ættingjum mínum síðan áður en að ég flutti út svo að það var gaman að hitta alla og ég skemmti mér rosalega vel.

Ég var sátt við ferðina, náði svosem að hitta alla sem ég ætlaði að hitta fyrir utan það að ég ætlaði í heimsókn aftur til Söndru og Söru og hitta börnin þeirra sem ég hef ekki séð ótrúlega lengi. Heimir Jarl hef ég aldrei séð og hann fer að verða árs gamall. En ég er að íhuga aðra Íslandsferð í sumar meðan leikskólinn er lokaður hjá Hörpu. Það verður þá öllu lengra stopp og þá myndi ég ná að hitta alla sem ég vildi hitta.

Á sunnudeginum flaug ég aftur til Danmerkur og ég var frekar þunn og þreytt í þeirri ferð. Kom heim um hálf 4 um nóttina og þurfti að vakna í skólann kl 7.

Ég er búin að eyða allri vikunni í að jafna mig fyrir utan það að ég er búin að vera á milljón alla daga og öll kvöld að skrifa því ég var að skrifa ritgerð með grúppunni minni. Hún kláraðist sem betur fer á föstudaginn Hlæjandi

Við stelpurnar fórum svo allar saman á Sex in the city á föstudagskvöldið, það var ágætis mynd og mikið hlegið....þaðan fórum við allar (nema Elísabet) heim til Sigrúnar upp á kollegie og svo á skólabarinn eins og svo oft áður. Elísabet missti af þrusu djammi því að Sylvía fyndna var frekar fyndin það kvöld..... ég fer ekkert nánar út í það. Glottandi

Ég vaknaði svo í þynnkunni heima hjá Sylvíu og Tinnu......eftir það er ég ekki búin að gera neitt af viti. Stefnan er að fara að læra í dag og undirbúa mig fyrir próftörnina.

Mér finnst ótrúlegt ef einhver hefur nennt að lesa þetta allt...........þú átt ekkert líf!

Kv. Anna

08. júní 2008 klukkan 10:50
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
5 athugasemdir
07maí

Til hamingju Ísland.............

Er ekki titillinn í anda Elísabetar?? Hún setur alltaf einhverjar línur úr lögum í fyrirsögnina....

Ég var að panta far til Íslands....ég fer að kvöldi 29. maí og af landi brott um miðjan dag þann 1. júní.... þetta er frekar stutt ferð því ég verð í ritgerðarsmíðum á þessum tíma og get því miður ekki leyft mér að taka lengra frí frá skólanum....en pabbi gamli verður sextugur þann 27. maí og það verður haldið upp á það með prompi og pragt á laugardeginum 31. maí svo ég get ekki látið mig vanta þar....vonandi sé ég samt sem flesta á meðan ég verð á landinu....
07. maí 2008 klukkan 22:14
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
15 athugasemdir
19apríl

Vorið er komið.....

Það er búið að vera sól og æðislegt veður í dag.....Ég held að sumarið sé loksins komið...

Ég er búin að vera dugleg í vorverkunum undanfarið, en ég fékk bílinn og kerruna lánað hjá Bet um daginn til að fara á haugana með allt draslið sem er búið að safnast upp hjá mér......þar á meðal var jólatréð frá síðustu jólum sem var búið að liggja úti á palli að grotna niður frá því á áramótunum. Ég er ansi stollt af mér að hafa tekist þetta alveg sjálf en ég ég tók drasl úr geymslunni sem þurfti að henda.....mér hefur ekkert verið allt of vel við að fara inn í geymslu því þar leynast all svaðarlega stórar kóngulær.....en ég var með hanska og hitti sem betur fer enga stóra..... Það sást nú alveg að það var kvenmaður sem raðaði á kerruna því ég hef aldrei nokkurntíman séð jafn illa raðað á kerru .......sjá mynd....



Ég fékk svo slegið blettinn líka í vikunni og Fúsi litli setti upp trampólínið fyrir mig svo ég tel mig vera tilbúna fyrir sumarið núna....




Á fimmtudags kvöldið flykktumst við stelpurnar á skólabarinn því heyrst hafði að þar yrði strippari......eftir langa bið mætti svo stripparinn á staðinn og eins og Fanney sagði þá var hann á aldur við pabba hennar......svo við urðum flestar fyrir vonbrigðum.......aðrar skelltu sér fremst til að sjá mannin almennilega......sjá mynd...




Ég fór heim snemma af skólabarnum vegna heilsuleysis.....sem var ágætt því þegar heim var komið fékk ég "gubbupest" það hefur ekki gerst í ár og öld....


Á föstudeginum ákváðum við að skella okkur til Þýskalands.......sumar voru hressari en aðrar í þeirri ferð.....ég hafði farið svo snemma heim á fimmtudeginum að ég var vöknuð kl 8 á föstudags morgun.....aðrar höfðu verið öllu lengur að djamma svo þær voru minna hressar......þá sérstaklega Sylvía sem sat afterí með börnunum......og var hún nær dauða en lífi......við Elísabet vorum hinsvegar hressar frammí og skemmtum okkur konunglega.....ég keyrði bílinn hennar Sylvíu vegna heilsuleysis hennar.....hér er mynd úr þeirri ferð...




Í næstu viku fer Harpa María eitthvað með mér í skólann því það er verkfall hjá pædagogmedhjælperum. Henni hlakkar rosalega til og við erum búnar að kaupa skólabók fyrir hana svo hún geti æft sig að skrifa í skólanum til að láta tímann líða......hún segist ætla að verða sygeplejerske þegar hún verður stór eins og mamma sín svo hún lærir vonandi eitthvað í faginu ældre sygepleje á mánudaginn. Á þriðjudaginn fer hún svo til eyrnalæknisins til að fá rör í eyrun, þetta er í þriðja skiptið sem hún fær rör en hún fær alltaf vökva fyrir innan hljóðhimnuna sem veldur því að hún heyrir illa. Það lagast svo um leið og hún er komin með rör svo ég hlakka rosalega til.

Hérna eru hún og Natan í bílnum á leið til Þýskalands





En svona vegna commentsins hjá Söru vegna köben ferðarinnar og Samsbars......þá já Sara mín þá var þetta sami Samsbar og við fórum á árið 2000.......ég fór að skoða myndir úr þeirri ferð til að rifja það upp.....ohh það var svo gaman hjá okkur....... Við pöntuðum bara farið út til Dk.....enga gistingu.....en allt reddast......við byrjuðum við á að gista heima hjá að mig minnir einhverju ókunnugu homma pari.......fundum svo ódýrasta hótelið sem var út frá Istedgade .......það var ekkert annað laust með engum fyrirvara nema það kostaði morð og milljónir...en hótelið sem við gistum á var hótel sem vændiskonurnar komu með kúnnana sína á.......þetta var jú ódýrt og ógeðslegt hótel með kakkalökkum.......ekki skánaði það við það hversu illa við gengum um herbergið og hóteleigandinn hafði á orði að hann hefði aldrei séð jafn sóðalegt hótelherbergi Saklaus (myndir á picasa).......og að lokum gistum við hjá Arnari bróðir Rakelar sem er vinkona tvíburanna.......Hér er mynd af Söru fyrir utan eina dótabúðina sem var við Istedgade Ullandi



Ég læt þetta nægja í bili af bloggi með myndum.......

MySpace Tracker
19. apríl 2008 klukkan 20:37
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
5 athugasemdir
12apríl

Litla prinsessan orðin 5 ára

Afmælisbarnið
" alt="Afmælisbarnið" title="Afmælisbarnið" width="101" height="30" align="baseline">

Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Mér finnst vera svo stutt síðan ég eignaðist litlu prinsessuna mína og hún orðin þetta gömul. Við héldum upp á afmælið fyrir vini og ættingja í dag. Harpa fékk fullt af flottum gjöfum og var ánægð með daginn. Það verður þá ekki meiri kökubakstur fyrr en ég held næst saumaklúbb, enda er ég komin með nóg af kökubakstri í bili. 

Maríuhænan heppnaðist ágætlega fyrir utan það að svarti liturinn varð aldrei almennilega svartur .....hann kom út meira grár.......en blessuð börnin eiga eftir að skilja út rauðu og svörtu næstu daga því það þurfti ansi mikinn matarlit til. Það sást líka ansi vel framan í börnunum sem flest voru svört eða rauð í framan Hlæjandi  Sylvía hjálpaði mér við baksturinn í gær og fær hún þúsund þakkir fyrir......takk elsku besta Sylvía mín Koss Ég set inn myndir úr afmælinu á picasa
http://picasaweb.google.com/annasigga

En til að monta mig á kökunni kemur inn mynd hér.
" alt="Maríuhænan" title="Maríuhænan" width="97" height="30">


Þetta kerfi er eitthvað gallað og ég get ekkert gert við textanum sem kemur með myndunum.

Letrið á síðunni var stækkað eftir kvörtun frá vissri stúlku sem gengur undir nafninu Sylvía ......spurning hvort stúlkan þurfi sterkari gleraugu bráðlega........ en hún er dugleg að kíkja á síðuna mína og kvitta fyrir sig.....það verður ekki sagt um alla......svo hún fær að gera kröfurGlottandi

12. apríl 2008 klukkan 22:39
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
7 athugasemdir
10apríl

Erfiður dagur að kveldi kominn...

Fjúff hvað ég er þreytt núna... Krakkarnir úr leikskólanum komu í morgun og Harpa bauð þeim upp á köku og bollur. Strax eftir að þau voru farin þurfti ég svo að versla fyrir saumaklúbbinn og fara að baka fyrir skvísurnar. Eins og mér finnst gaman að baka þá finnst mér óþolandi allt uppvaskið sem fylgir því..... Ég er búin að ákveða að skrópa í skólann á morgun þar sem ég þarf að baka fyrir afmælið á Laugardaginn og er dauðþreytt eftir þennan dag.

Ég setti inn myndir frá afmælinu í dag inn á picasa albúmið.

Hér kemur svo mynd af Hello kitty kökunni sem heppnaðist ágætlega. Elísabet fannst hún allavega sjúklega góð :D

" alt=" " width="38" height="30">
10. apríl 2008 klukkan 22:09
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
4 athugasemdir
08apríl

Langt síðan síðast...

Málið er að ég er ekkert að nenna þessu blogg standi. Ekki frekar en nokkru öðru.....

Mér finnst ég svo framkvæmdalaus, kem mér ekki í að gera nokkurn skapaðann hlut og þá sérstaklega í sambandi við heimanámið í kringum skólann. Mér finnst svo mikill heimalestur ......ég sit og les án þess að hafa hugmynd um eftir á hvað ég var að lesa. Ég sit föst í einhverjum dagdraumum um hitt og þetta í tímum í skólanum og þegar ég kem heim finn ég mér eitthvað allt annað að gera en að læra og þegar ég loks drattast í það að læra þá sit ég fram á nótt jafnvel að lesa....sem svo veldur því að ég er dauð þreytt næsta dag....

Dæmi um dagdraum hjá mér í síðustu viku var að ég var að láta mig dreyma um það í vöku hvað ég myndi nú gera ef ég ynni stórann vinning í lottóinu, við erum að tala um 30 milljónir danskar...... ég var búin að kaupa nokkur hús, bíla og ég veit ekki hvað og hvað......þetta var í mikrobiologi tíma.......einstaklega leiðinlegt fag.....

Ég veit ekki hvað ég á að gera í þessu en eitthvað verð ég að gera, ég hef mig bara ekki í það...... ætli ég sé þunglynd?? Ég er bara eitthvað ekki að nenna að vera í skóla þessa dagana....

Það var annars nóg að gera um helgina, djamm bæði fös og lau ég skellti inn myndum á bæði myspace-ið og facebookið.....ég er annars virkilega að íhuga það að hætta með þetta blessaða myspace. Ég nenni ekki að setja inn myndir á báða staði svo að Elísabet verður bara að gjörasvovel að læra á facebook til að geta skoðað myndir. Ástæðan fyrir því að ég vil frekar facebookið er að ég á fleiri vini þar en samt finnst mér myspaceið skemmtilegra að nota og það eru fleiri myndir inni á myspace-inu sem ég þyrfti að flytja yfir....ég hugsa aðeins málið...miðað við hvað ég er framkvæmdalaus þá á ég örugglega eftir að halda bæði facebookinu og myspacinu því annars þarf ég að taka ákvörðun um að velja annað hvort.

Harpa María á afmæli á laugardaginn næstkomandi, ótrúlegt að það skuli vera heil 5 ár síðan ég átti litlu prinsessuna mína. Leikskólinn ætlar að koma heim til hennar á fimmtudaginn ef henni verður batnað af kvefinu sínu en hún fór ekki í leikskólann í dag. Svo verður afmælið fyrir vini og ættingja á laugardaginn. Það eru búnar að vera miklar kökupælingar í kringum þetta afmæli því mig langaði að gera maríuhænu köku en henni langar í hello kitty köku svo það var ákveðið að gera hello kitty þegar leikskólinn kemur og maríuhænu köku þegar fjölskylduveislan er, ég skelli inn myndum af þeim ef þær lukkast hjá mér.

Á fimmtudagskvöldið er svo saumaklúbbur hjá mér og þar er Lína að heimta allskonar kökur.....Ég á ábyggilega eftir að bæta á mig 5 kg þessa vikuna miðað við hvað verða margar kökuveislur hjá mér.....! 

Læt þetta nægja í bili....þar sem mér dettur ekkert fleira í hug....

Kv. Anna panna

08. apríl 2008 klukkan 19:13
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
5 athugasemdir
24mars

Afmælið og köben ferðin....

Ákvað að blogga smá um köben ferðina....

Ég var búin að ákveða það að ég myndi fara til köben og heimsækja Heiðu Dís á Laugardeginum og fara svo og sækja Sylvíu, Fannar og Hörpu Maríu upp á flugvöll á sunnudagskvöld.

Ég var búin að suða í Elísabet um að koma með mér til köben en hún var eitthvað tvístígandi.....svo ég hellti hana fulla í afmælinu hans Fúsa og allt í einu kallaði hún á mig og sagði... Anna ég er að koma með þér til köben....ég svaraði nú.....þá segir hún að Ásta, Fanney og Túri ætli að koma með líka......það er ótrúlegt hvað hægt er að hafa fólk út í þegar það er fullt! Ég hugsaði auðvitað the more the marryer svo mér leist vel á það.....

En við skemmtum okkur rosalega vel í afmælinu, skemmtiatriðin voru snilld og maturinn stóðst allar væntingar hjá mér....við vorum uppi í veislusal til 5 og löbbuðum svo nokkur hérna heim og vorum í smástund lengur...

Hljóðið í Elísabet var svo örlítið annað á Laugardags morguninn fyrir það fyrsta vegna þess að stelpan var raddlaus og talaði eins og gamall sjómaður sem hefði reykt 4 pakka á dag í 50 ár og vegna þess að nú hafði runnið af henni og henni leist ekkert svo vel á það lengur að fara til Köben....ennnn.....það þýðir ekkert að lofa einhverju og svíkja það síðan svo til köben skyldi hún....Fanney bailaði vegna veikinda svo það voru ég, Elísabet, Ásta og Túri sem fórum....Það var frekar fyndið þegar ég var að tala við Heiðu Dís að bæta við fólki í gistingu hjá henni......en sem betur fer var hún lige glad og allir voru velkomnir heim til hennar...

Til köben keyrðum við.... Elísabet og Ásta byrjuðu að drekka við take off og Túri þegar við vorum komin að Óðinsvé svo það var keyrt á hraða ljóssins til að þau yrðu ekki orðin allt of full þegar ég gæti farið að drekka með þeim.....

Heiða Dís tók á móti okkur og við sátum þar og drukkum og spiluðum singstar......Lísa vinkona kom og hitti okkur og Ketill vinur Ástu....og þaðan var haldið í bæinn....á Samsbar.....þar sem við vinkonurnar fórum í leik sem hefur ekki nafn en ef hann hefði nafn þá gæti hann kallast "gerðu þig að eins miklu fífli og þú getur á einu kvöldi"........en það fól í sér að við mönuðum hver aðra út í það að gera hitt og þetta......ég fer ekkert nánar út í það hérna......en þessi leikur verður spilaður aftur þegar við erum utanbæjar því þetta var snilld!....en ég hugsa að við stelpurnar tökum ekki áhættu á að hitta þetta lið strax aftur svo það verður farið eitthvað annað en til köben í næstu djamm ferð :D Ég get allavega með sanni sagt að þetta var eitt af þeim skemmtilegri djömmum sem ég hef átt og hef ég átt þau nokkur.... Þær Elísabet og Ásta fóru svo með næturlestinni klukkan 5 heim til Horsens og við Túri gistum heima hjá Heiðu Dís.... Til að fyrirbyggja allann misskilning þá gisti ég uppi í hjónarúmi hjá Heiðu Dís og Túri svaf á sófanum.....og aftur til að fyrirbyggja misskilning hjá Báru vinkonu sem heldur að ég sé orðin lesbísk vegna þess að ég er búin að búa ein í 2 mánuði.........þá sváfum við Heiða hlið við hlið :Þ

Laugardagurinn fór svo bara í þynnku heima hjá Heiðu Dís og sjónvarpsgláp.....Við Heiða keyrðum reyndar alla 500 metrana út á Dominos því ég vildi ekki labba þangað og fengum okkur þynnkufóður og heim aftur.....við keyrðum svo Túra upp á flugvöll og við Heiða lögðum okkur á sófanum þar til ég fór að sækja liðið. Harpa var auðvitað glöð að sjá mömmu sína og knúsaði mig sundur og saman..... svo var brunað beinustu leið heim og farið að sofa!

Allt í allt var þetta frábær ferð.....Heiða Dís þú færð þúsund þakkir fyrir frábæra gestrisni og drífur þig að koma í heimsókn til okkar og prófa djammið í Horsens...

Nú er komið að kósí kvöldi hjá okkur Hörpu með Íslenska namminu og video svo ég skrifa síðar...

Kv. Anna


24. mars 2008 klukkan 15:55
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
11 athugasemdir
20mars

Vikan.....afmæli og köben

Ji... ég verð að byrja á því að segja frá kallinum sem bjargaði gærdeginum.....

Málið er að ég var á leið í vinnuna í gær………eins og vanalega syng ég hástöfum í bílnum..... nema á rauðum ljósum....þá reyni ég að hemja mig því það er frekar asnalegt að láta bílstjórann fyrir framan sig horfa á sig syngja hástöfum í baksýnisspeglinum.....nema það að á einum af þeim rauðu ljósum sem eru á leið í vinnuna sit ég sjálf og horfi í baksýnisspegilinn.....og sé þar mann sem hrækir út um gluggann........nema það að hann hitti ekki út og hrákan lenti greinilega innan á rúðunni.....kallinn fór svo í fát og reyndi eitthvað að þurrka þetta með puttunum........en það fá engin orð líst svipnum á manninum......maður þarf eiginlega að ímynda sér hvernig maður sjálfur væri ef maður myndi óvart gera svona og einhver gæti séð til......mér fannst þetta allavega svo viðbjóðslega fyndið að ég lá í krampa alla leiðina í vinnuna. Auk þess kom þetta upp í minningunni oft yfir daginn og ég fór að flissa.

 Þetta bætti meðal annars upp fyrir það að ég fór í vinnuna og sótti vinnubílinn sem var nánast bensínlaus af því ég nennti ekki að dæla á hann í fyrradag.......svo mín brunaði út á Statoil (bensínstöð) og ætlaði að fara að tanka Diesel á bílinn því ég vissi að þetta væri diesel bíll.......ég byrja að stinga dælunni í gatið og hún komst ekki alveg niður .......svo ég hugsaði með mér að diesesl olían færi örugglega niður í tankinn þrátt fyrir það......svo ég byrja að dæla......en nei.....hún sprautaðist út fyrir….eitthvað á mig........ég labba inn og spyr hvort það sé einhver sem gæti hjálpað mér því ég fái þetta ekki til að passa.......þá benti kallinn mér á það að það væri kannski betra fyrir mig að fara á dælu fyrir venjulega bíla því þessi pumpa væri fyrir vörubíla.....dóh!.....great.....ég lyktaði eins og disel olía þar til ég komst heim eftir vinnu.....en þetta var ekkert svo mikið....bara lyktar!........En það bætti upp fyrir þetta að ég gat hlegið að kallinum í fyrri sögunni.

Fúsi átti svo afmæli í gær og varð sextugur kallinn! Það verður haldið upp á það með stæl á föstudaginn og ég bíð spennt eftir þeirri veislu....það er búið að vera svo mikill undirbúningur og ég er með miklar væntingar um skemmtilegt kvöld. Enda klikka veislur aldrei hjá Kristínu........ mömmu maturinn er alltaf bestur og ég hlakka til að fá mat og sjá öll skemmtiatriðin sem er búið er að undirbúa......svo ekki sé minnst á þrusu fyllerí sem fylgir auðvitað.

Sylvía og Fannar koma svo á sunnudaginn og Harpa María með þeim en hún var hjá pabba sínum á Íslandi……ég hlakka geðveikt til að fá hana aftur heim!....það er frekar tómlegt hérna án hennar. Það verður að sjálfsögðu líka gaman að fá Sylvíu aftur heim…….ég skil ekki í henni að vera að fara svona frá mér…..vona að hún geri það aldrei aftur! 
 

Ég fór í Singstar heima hjá Maríu í gær ásamt Maríu, Hófí og Renötu…..röddin bíður þess hnekki nú…….við skruppum svo í bæinn og ykkar einlæg var edrú og keyrði hinum byttunum þ.e. Maríu og Hófí.
  

Vinnan sem ég var að vinna var bara mán, þri og miðvikudag ….,bæði til að ná sér í auka pening og til að hafa eitthvað að gera meðan hún Harpa María var í burtu. Ég var að vinna við það að fara heim til fólks og þrífa……sem er viðbjóðslegt job….sumt fólk getur verið svo sóðalegt…..sérstaklega kallar sem búa einir…..þeir virðast pissa einstaklega mikið út fyrir og það lyktar!……..sem betur fer var þetta bara í 3 daga…  

Á laugardaginn er planið að hitta Heiðu Dís og Lísu vinkonur í köben og djamma aðeins með þeim. Ég hef ekki hitt Lísu síðan við vorum saman í matarklúbbnum á Íslandi og Heiðu Dís hef ég ekki frá því hún, Sturla og Anika Rut voru í heimsókn hjá okkur fyrir rúmum 2 árum….Heiða Dís er ein heima því kallinn hennar og barn verða í Svíþjóð svo það verða læti heima hjá henni á Laugardag!! Svo sæki ég Sylvíu, Fannar og Hörpu Maríu á sunnudagskvöldið upp á flugvöll…fæ Sylvíu til að versla fyrir mig Íslenskt nammi…….það verður ágætt að narta í það á leið heim í þynnkunni á sunnudagskvöld! Ég er að reyna að draga Elísabet með mér……hún er að hugsa málið….kemur í ljós hvað hún svo gerir…..  

Þetta var/er það helsta…..svolítið rót í þessu og engin tímaröð á hlutunum en þetta skilst! 

Þar til næst…… 

Kv. Anna
20. mars 2008 klukkan 15:09
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
8 athugasemdir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigríður Þorleifsdóttir
  • Staður: Gedved
  • Atvinna: Hjúkrunarfræðinemi

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...