Ný færsla....

Þetta blogg er ekki alveg að gera sig yfir próftímabilið en ég ákvað að gera eina færslu áður en ég færi í prófin en þau eru 13. júní og 26. júní.

Það er aldeilis mikið búið að drífa á daga mína síðan síðast.´

Ég byrja á Íslandsferðinni, en ég fór til Íslands á fimmtudaginn í síðustu viku til að vera viðstödd sextugs afmælið hjá pabba. Ég vaknaði um 8 leitið á fimmtudagsmorguninn og kláraði að pakka, svo var löööng lestarferð því hún tók 4 tíma þar sem það er verið að gera við teinana. Ég flaug um kvöldið og lenti á Íslandi um hálf 11. Okkur Hörpu tókst svo á met tíma að fara í gegnum fríhöfnina og versla svo fórum við út um tollinn og þetta var sem betur fer eitt af fáum skiptum sem ég var ekki stoppuð. Ennnn.........þegar út var komið fór ég að leita að kunnulegu andliti.........Þórunn systir ætlaði að sækja mig.....en nei.......þarna var engin Þórunn.........svo ég hringi í hana......og fæ viðbrögðin haaaa......ertu komin??? ég er að leggja af stað og sækja þig...... hún hafði eitthvað misskilið mig og hélt að ég kæmi klukkutíma síðar en ég gerði....
En Þórunn braut eflaust allar umferðarreglur á millli Hafnarfjarðar og Keflavíkur því hún var komin fljótlega að sækja okkur og brunaði með mig upp í breiðholt og skutlaði Hörpu til ömmu sinnar.

Ég fór með tollinn heim til Söndru að hitta hana og Söru og þar var aðeins djúsað......mér finnst svo gaman að hitta tvíburana.......ég er ekki alveg að gúddera það að þær séu að flytja til Hveragerðis........en það verður bara að venjast.  Ég var þar til um klukkan..........guð má vita hvað...... eitthvað seint um nóttina....

Eftir lítinn svefn vaknaði ég og fór og sótti Hörpu og við brunuðum heim í Hafnarfjörð að sækja Írisi sætu.... þann daginn fórum við mæðgurnar í heimsókn til Báru vinkonu og hittum alla þar......ég fór svo drekkhlaðin þaðan af harðfisk frá Brynjari og fær hann Brynjar besti þúsund þakkir fyrir

....þaðan fórum við og borðuðum svo með familíunni. Við systkinin hittumst öll hjá pabba ásamt Áslaugu konunni hans Ægis og öllum barnabörnunum hans pabba og borðuðum saman. Við fórum svo heim um 11 leitið og Ég og Íris horfðum saman á pretty woman....það var uppáhalds myndin mín þegar ég var 13 ára......en við Íris fórum því fyrst að sofa um 3 leitið. Það var vaknað snemma næsta dag eða um hálf 7 því Harpa og Íris áttu flug til Eyja kl hálf 9. Ég keyrði prinsessunum út á flugvöll en Íris ætlar að passa Hörpu á daginn á meðan Elona er í vinnu. Pabbi hennar kemur svo frá Tokyo á mánudaginn til að vera með þeim í eyjum.

Þaðan fór ég til pabba og hjálpaði honum með afmælisundirbúininginn .....það var allt rosalega flott hjá kallinum og heppnaðis mjög vel. Ég hafði verið búin að plana slideshow fyrir pabba í afmælinu og hafði beðið Fúsa litla um að hjálpa mér við það. Hann er snillingur í öllu sem viðkemur tölvum og fékk hann til að sjá um þetta fyrir mig, en hann hafði einmitt gert svona svipað í afmælinu hjá pabba sínum og þaðan fékk ég hugmyndina. Svo fyrir afmælið hafði ég fengið Ægir bróðir til að scanna inn myndir sem voru til af pabba og senda mér. Fúsi litli setti þetta saman og þetta var snilld, það sem krakkinn getur gert er ótrúlegt. Þúsund þakkir elsku besti Fúsi minn Hlæjandi Myndbandið var sýnt í afmælinu og fólk felldi tár því þetta var svo fyndið. Það er í vinnslu að setja myndbandið inn á youtube.
 
Það var boðið upp á hellings hellings áfengi í afmælinu svo að það var djammað fram á rauða nótt. Ég hef ekki hitt mikið af ættingjum mínum síðan áður en að ég flutti út svo að það var gaman að hitta alla og ég skemmti mér rosalega vel.

Ég var sátt við ferðina, náði svosem að hitta alla sem ég ætlaði að hitta fyrir utan það að ég ætlaði í heimsókn aftur til Söndru og Söru og hitta börnin þeirra sem ég hef ekki séð ótrúlega lengi. Heimir Jarl hef ég aldrei séð og hann fer að verða árs gamall. En ég er að íhuga aðra Íslandsferð í sumar meðan leikskólinn er lokaður hjá Hörpu. Það verður þá öllu lengra stopp og þá myndi ég ná að hitta alla sem ég vildi hitta.

Á sunnudeginum flaug ég aftur til Danmerkur og ég var frekar þunn og þreytt í þeirri ferð. Kom heim um hálf 4 um nóttina og þurfti að vakna í skólann kl 7.

Ég er búin að eyða allri vikunni í að jafna mig fyrir utan það að ég er búin að vera á milljón alla daga og öll kvöld að skrifa því ég var að skrifa ritgerð með grúppunni minni. Hún kláraðist sem betur fer á föstudaginn Hlæjandi

Við stelpurnar fórum svo allar saman á Sex in the city á föstudagskvöldið, það var ágætis mynd og mikið hlegið....þaðan fórum við allar (nema Elísabet) heim til Sigrúnar upp á kollegie og svo á skólabarinn eins og svo oft áður. Elísabet missti af þrusu djammi því að Sylvía fyndna var frekar fyndin það kvöld..... ég fer ekkert nánar út í það. Glottandi

Ég vaknaði svo í þynnkunni heima hjá Sylvíu og Tinnu......eftir það er ég ekki búin að gera neitt af viti. Stefnan er að fara að læra í dag og undirbúa mig fyrir próftörnina.

Mér finnst ótrúlegt ef einhver hefur nennt að lesa þetta allt...........þú átt ekkert líf!

Kv. Anna

08. júní 2008 klukkan 10:50
Anna Sigríður Þorleifsdóttir
Bára Berg skrifar ...
He he jú víst! ...... en það var ekkert smá gaman að hitta þig elsku krúttið mitt, og ég hlakka geðveikt til að fá þig í sumar :)
09. júní 2008 klukkan 01:45
Tiddi skrifar ...
Las þetta allt með bestu lyst. Á alveg hellings líf þrátt fyrir það!!
10. júní 2008 klukkan 19:56
Elísabet Ósk VigfúsdóttirÉg á sko líf vina mín en las þetta allt saman og hafði bara gaman af.

En já svona er þetta maður kemur ekki með ykkur eitt einasta skipti og þá gerist bara allt og ekkert ha ha ha
Jæja ætla að halda áfram að læra ekki að kvitta eða lesa blogg ;)
11. júní 2008 klukkan 14:27
Elísabet Ósk VigfúsdóttirVill bara óska þér góð gengis á morgunn og lofa að krossa fingur fyrir þér.
25. júní 2008 klukkan 21:05
Sara í "sveitinni" skrifar ...
Hæ hæ sætan mín ....

Jii hvað var gaman að sjá þig eins og alltaf .... og þegar þú kemur í sumar verður sko sleepover-girls night out í sveitinni takk fyrir pent ;)

1000 kossar og knús frá Vera hvergi hehe
02. júlí 2008 klukkan 14:49

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigríður Þorleifsdóttir
  • Staður: Gedved
  • Atvinna: Hjúkrunarfræðinemi

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...